This is the world as I see it
Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
Könnun
Á að fara til útlanda í sumar?



22.11.2008 11:59:02 / jona

Bloggleti

Já nenni ekki einu sinni að skrifa á þetta lengur.
En hvað er búið að gerast á Íslandi frá því að ég fór í sumarfríið mitt og kom til baka, ég BARA SPYR!!
Svo er ég eiginlega hætt að nenna að horfa á fréttir þar sem þær eru alltaf eins, same shit different day, og ég er komin með upp í kok af þessum fréttum.
Er annars bara alltaf að vinna, jólin að fara að bresta á eftir 4 1/2 viku cirkabout, ég búin að kaupa allar jólagjafir nema fyrir Svanlaugu og Mörtu, á eftir að pakka inn öllum gjöfunum og svo var ég að skrifa jólakortalista í gær, ég er komin upp í 47 kort og finnst ég samt vera að gleyma einhverjum, en það kemur þá bara í ljós þegar að því kemur.
Ein spurning, man einhver hvað síðurnar sem ég setti myndir inná hérna í denn hétu?? man endinguna en ekki hvar þær voru, langaði að skella þeim á fésbókina mína, hef allann daginn í að hugsa um þetta, en ef þið getið hjálpað endilega sendið mér línu á fésbókina.
Þórdís er orðin frísk, búnar að vera heima alla vikuna (hún lasin og ég frísk) og vá hvað mig langar að komast aftur í vinnuna, ekki hægt að vinna mikið heima með hana lasna....

Hef annars ekkert meira að segja þannig lagað séð, spurning hvort ég reyni að reyna verða duglegri að blogga, lofa samt engu :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 10:49:53 / jona

JÁ SÆLL!!!

HMMMMMMMMMMMMMMM hvaða hvaða....ég hef bara ekki skrifað neitt síðan 1.júni, en það hefur verið svolítið mikið að gera hjá mér í sumar, ætla að fara snögglega yfir það hérna.

Fór í útilegu í Skaftafell og hitti þar systkini mín, frændsystkini mín og litlu frænkur mínar og frænda, það var svakalega gaman en Þórdís varð lasin með ælupest á leiðinni þangað, svo var hún orðin betri á laugardagskvöldið/sunnudagsmorgun, en þá tók ekki betra við og ég fékk ælupest og tilheyrandi, sem betur fer var Linda systir í bílnum með mér á leiðinni til baka því ég gat keyrt afskaplega takmarkað. Svo átti ég afmæli og svo kom Júlí.....Hulda, Almar, Alexander og Lovísa komu hingað um miðjann júlí, við fórum út að borða á hótelinu í tilefni af afmælinu hjá Braga afa heitnum og svo átti pabbi afmæli, svo kom Kolla í heimsókn í uþb 2 vikur, (gerðist barnapía hjá mér og þjónn á hótelinu) og svo voru mærudagar og hitti fullt af fólki þar, rosalega gaman og geðveikt veður, það vantaði ekki :) svo kom verslunarmannahelgin og var bara róleg hana og svo fóru ég, pabbi og Þórdís á Fiskidaginn mikla á Dalvík og það var bara æðislegt, mjög gaman, gott og milt veður (að vísu fengum við Þórdís að gista inni í hjólhýsinu hjá Ottó og Sóley þar sem hitastigið um nóttina nálgaðist frostmarkið illilega), svo bara meira vinna, haldið staffapartý þar sem við fórum í siglinu og allir skemmtu sér bara svakalega vel.
Núna er svo kominn 12 sept og ég er komin í sumarfrí!!! er að fara í göngur í fyrramálið, hittingur "á sama tíma að ári" laugardagskvöld með hressum stelpum, réttir á sunnudaginn, pakka niður á sunnudaginn og svo keyrum við Guðný og Þórdís saman suður á mánudaginn og gistum hjá Kollu og Davíð og svo á þriðjudeginum förum við upp á Leifsstöð og tökum flug til TENERIFE, þar sem við ætlum að vera í tvær vikur og gera nákvæmlega EKKI NEITT! amk ekkert annað en að sóla okkur, bera sólarvörn á okkur og Þórdísi, borða mat og chilla á sundlaugarbökkunum, einnig er í planinu að kíkja í Loro Parque, sem er dýragarður með allskonar sýningar (höfrunga, háhyrninga, sæljón, górillur, páfagauka ofl dýr.) EN aðalmálið verður að vera í fríi í sól og njóta þess í botn og slaka á eftir annasamt sumar (samt miðað við upptalninguna hérna að ofan hljómar þetta kannski ekki mikið en treystu mér, þetta var erfitt) og ég ætla sko að njóta þess að fara í sumarfrí.
Mun svo blogga einhverntímann í október þegar ég kem aftur og setja inn myndir ofl ofl ofl.
Fariðið vel með ykkur þangað til næst :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 09:55:18 / jona

1. Júní

Og sólin skein skært inn um gluggann minn þegar ég vaknaði rétt eftir kl.7 í morgun með geðveikann verk í bakinu, var að drepast í mjóbakinu, hvort ég hafi sofið eitthvað skakt í nótt (Þórdís svaf að vísu uppí og það gæti verið ein útskýring).
Svo í gær var ég sko algjör Ofurmamma og Ofurhúsmóðir: ég fór með Þórdísi og Lindu upp í skóla á sjómannadagshátíðarhöldin (langt orð) og hlustuðum við á Ljótu Hálfvitana (alltaf jafn fyndnir) og horfðum á fólk sprella í ýmsum þrautum og svo fengum við okkur pylsu og gos. Svo skrapp ég niður á hótel þar sem að ég var að flýta mér svo mikið heim á föstudaginn um 18:30 að ég gleymdi kápunni minni og í vasanum á kápunni voru lyklarnir að bílnum og íbúðinni (gáfuð Jóna). En svo fórum við og horfðum á fótboltaleikinn með (F)ljótu hálfvitunum og mfl. Völsungs í kvennaboltanum og ég fór heim þegar það var 1 mínúta eftir því að hálfvitarnir voru að rústa þessu. Þá fórum við Linda út í búð og ég verslaði aðeins fyrir kvöldmatinn. Svo kom mamma og þá fór ég að huga að því að grilla, sem ég gerði með myndarbrag :) Svo horfðum við á handboltann (ísland tapaði) og borðuðum grillkjötið og svo grillaði ég banana með marsi inní og það rann líka niður ljúflega með appelsíninu! Mamma og Linda fóru báðar saddar heim og svo fór ég og ætlaði að svæfa Þórdísi og horfa svo á sjónvarpið. En Búkollusagan er greinilega svona svæfandi að við sofnuðum báðar, vaknaði svo um ellefu þegar síminn hringdi, en ég náði ekki að svara honum og því hélt ég áfram að sofa, mikið er gott að sofa, en er að spá í að þvo meiri þvott í dag, og leggjast í sólbað út á svalir.
Meðan ég man, ég keypti mér Mangó um daginn, kann einhver einhvern skemmtilegann rétt, eða eitthvað gott sem maður getur gert úr mangói, endilega látiði mig vita


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 23:35:59 / jona

Smá pistill sem ég fann hjá Sirrý Frænku (takk e'skan)

Smá grín handa öllum konum fyrir fyrstu útileguhelgi ársins

Haltu öllum vinkonum þínum frá  eftirfarandi :

a) Hjásvæfunum þínum  ef þú hefur enn löngun til að sofa hjá þeim , ert enn hrifin af þeim eða sterkir möguleikar eru til þess að þið séuð að fara að þróa ykkar brothætta samband.
b) karlmönnunum sem þið eruð að reyna við þá stundina.
c) Barnsfeðrum ykkar, bræðrum og feðrum og sonum, með feðrum þá á ég við blóðfeðrum, stjúpfeðrum og svoleiðis.
d ) Karlmönnum sem þið hafið alltaf verið hrifnar af en aldrei gefið það í skyn,


 Allar sannar konur vita regluna um að vera ekki að tína upp karlkynsfélaga eftir vinkonur sínar. Hvort sem þeir eru áhugaverðir eða ekki þá er búið að nota það og ekki er ætlast til endurvinnslu.

Ég hef alltof oft átt vinkonur sem hafa sama smekk og ég á karlmönnum og það hefur alltaf endað með vinslitum , ósköpum eða dramaköstum frá helvíti.

 Best er að eiga vinkonur sem hafa ekki sama smekk á karlmönnum og þú. Já eða engar vinkonur.
En það er líka alveg skelfilegt að eiga ekki vini af báðum kynjum.

 Undantekningar á þessum reglum er ef :


a) Sönn ást er í spilinu og þú ert sjálf þriðja hjólið.

b) ef vinkona þín hefur aldrei séð þennan mann og veit ekki að hann og þú hafa einhverntíma verið að dúllast. ( þá er tilgangslaust að mótmæla ef þau hittast og verða skotin )

c) Ef vinkona þín er miklu eldri eða yngri en þú og þig vantar  að koma henni á deit með ættingjum þínum eða vinum  og þá er deitið með þínu samþykki eða að þínu frumkvæði.

d) ef maðurinn sem er búinn að vera skotinn í þér en þú ekki honum er að trufla þig þá endilega klínirðu honum upp á næstu vinkonu þína.
Með tilliti til þess að hann sé ekki forljótur, geðsjúkur eða fáviti (maður gerir ekki vinkonum sínum svoleiðis)
Og þá sérstaklega þá vinkonu sem er mest despó og tekur við næstum hvaða manni sem er. ( þá erum við ekki að tala um bestu vinkonu  :) því þetta gæti komið aftan að þér ef þau byrja saman.

 Öllu gríni fylgir nokkur alvara þannig að gangið hægt um gleðinnar dyr og ekki láta hópnauðga ykkur á einhverju fylleríinu elskurnar

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 23:06:20 / jona

Komin Heim

Já kom loksins heim í gærkveldi, mikið var það nú gott, að sofa í eigin rúmi með heilsukoddann minn mmmmmmmmm.....

Ísland lenti svo í 14.sæti í Eurovision, sem er ágætt, hefði viljað að við myndum lenda ofar en við vorum amk hærri en Svíþjóð!

Horfði á Eurovision í gær, svæfði svo Þórdísi (sofnaði svo sjálf) og vaknaði um miðnættið þá var scent of a woman í sjónvarpinu, sem ég ætlaði mér upphaflega að horfa á en, ákvað í staðin að fara bara og sofa, svo í dag var bara þvottur og meiri þvottur, svo ætlaði ég bara að "skreppa" upp á hótel en "skreppið" varði í tæpa 4 tíma....en mikið að gera þegar maður er búin að vera svona í burtu, ótrúlegt hvað safnast upp af verkefnum og allskonar dóti sem ég þarf að gera, en vona að það taki mig ekki meira en þessa viku að vinna úr þeim.

Er að spekúlera að halda áfram að ganga frá dótinu mínu, íbúðin og sérstaklega svefnherbergið mitt lítur út einsog eftir sprengjuárás (þótt ég hafi tekið til í henni áður en ég fór) en þegar við komum heim í gær þá var öllum töskunum og pokunum bara skutlað inn í herbergi og svo horft á eurovision og svo sofnað, ekki mikið sem maður kom í verk, en verð að skipuleggja tímann enn betur og kannski sofa minna (I can sleep when I'm dead) og vinna meira, held ég sé farin að sjá það að sumarið gæti farið í geðveiki (þeas vinnulega séð) vona og veit að ég á eftir að höndla það þar sem ljósi punkturinn er 16.sept, þá fer ég til Tenerife, mikið hlakkar mig og líka við að sjá það að evran er í 113 kr., vonum að hún lækki nú bara aðeins meira :)

Hef svo sem ekki meira við þetta að bæta þannig lagað séð, fariði vel með ykkur þangað til að ég hitti ykkur næst


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 12:52:02 / jona

THIS IS MY LIFE!!!!

Og þeim tókst það, að koma íslandi upp úr forkeppninni og inn í úrslitin, mikið verður gaman á laugardaginn, en fór samt á júróvisjón/hótelstjóradjamm í gær, og vaknaði reyndar ekki þunn í morgun, enginn hausverkur bara þreyta í gangi, nenni innilega ekki að fara að erindast, ekki séns, nenni yfirhöfuð ekki að gera neitt, er að spá í að fara bara að taka saman og fara yfir í þolló til kollu og svo gistum við þar í nótt og leggjum af stað heim í fyrramálið,.

er að hugsa heimspekilegt (hlýst af því að hafa of mikinn tíma til að hugsa) en það eru bara svona pælingar um lífið og tilveruna, ekkert skemmtilegt þannig lagað séð, bara af hverju þetta og af hverju hitt (er ég ekki skemmtileg, þið fáið bara hálfkveðnar vísur :haha:)

Nenni ekki að gera nokkurn skapaðann hlut, en ætti víst samt að fara að gera eitthvað klukkan að verða eitt, góða helgi (held ég sé aðallega að drepa tímann og reyna að lengja hann, veit það að þegar ég kem heim þá er það aftur í vinnuna.......)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 00:03:00 / jona

Hætt að sauma, en sit á námskeiði og hlusta í staðinn

Og mikið langar mig að komast aftur norður í sæluna, sofa í mínu eigin rúmi með heilsukoddann minn (sé eftir því að hafa ekki tekið hann með mér suður), og bara verið heima hjá mér en ekki á hóteli í reykjavík, ekki að það sé eitthvað slæmt, þetta er bara ekki "my cup of tea", og myndi ég frekar vilja flytja aftur út til London heldur en að flytja til Reykjavíkur, mér persónulega finnst of mikið stress að vera hérna og svo tekur allt svo langann tíma, að fara allt, ef þú býrð t.d. í grafarvogi og ert að fara að heimsækja einhvern sem býr í vesturbænum þá er þetta ekki skrepp eins og væri fyrir norðan, við erum að tala um amk 1-2 tíma í skreppið (hef þetta eftir sollu hans ottó).
En þetta er nú allt að taka enda fljótlega og seinasti dagur námskeiðisins er á morgun (get ekki beðið) og þá verður haldið svona hópefli (team building) fyrir alla þessa verðandi og núverandi hótelstjóra og býst ég við að þetta verði bara nokkuð gaman þar sem að söngkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (annar í júróvisjón, vil ég reyndar kalla það :) ) Vonum svo bara að Eurobandinu takist að komast í aðalkeppnina á laugardaginn.
Búin að versla svoldið í borginni og allt í góðu með það í sjálfu sér, versla fyrir mig og þórdísi, bara gott mál.
Hef þannig lagað séð ekki mikið að segja, langar bara að komast heim, þótt að rúmin hérna séu góð vantar mig heilsukoddann minn og sængina mína..
Svo er líka gott að vera að fara að drífa sig norður, besta veðrið á að vera þar um helgina og þá er spurning um að fara út á svalir og reyna að brosa framan í sólin (og fá freknur, þar sem ég er svakalega lengi að fá lit).

En er að spá og spekúlera að fara að leggja mig, klukkan er 3mín í tólf á miðnætti, ég ætla að reyna að vera vöknuð í seinasta lagi kl kortér í átta á morgun, og fara með prinsessunni í morgunmat, vona bara að það verði smá sólartýra en ekki ský og rigning (er komin með nóg af borg bleytunnar að þessu sinni)

Munið svo að allir þeir sem geta kosið fyrir ísland á morgun, viljiði GJÖRA SVO VEL að reyna að koma okkur upp úr riðlinum!!!!

Gangið hægt um gleðinnar dyr í öllum júróvisjón partýunum og reynið að drekka ekki of mikið (ég ætla að reyna en spurning hvort það tekst.....)



» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 00:48:16 / jona

Ein ég sit og sauma

sem er nú reyndar ekki alveg rétt, en fyrri parturinn er það (ein ég sit) er reyndar ekki að sauma, en þyrfti samt að fara að falda þessar eldhúsgardínur sem Stóra Linda gaf mér um daginn, þær eru mjög flottar en nenni innilega ekki að falda þær (Linda vantar þig ekki eitthvað að gera í sauðburðinum?????) Minnir samt að ég hafi beðið Lindu um að gera svona prjónavesti eða lopapeysu fyrir mig, en hver er að telja (bað hana um að gera eitthvað fyrir mig þegar hún útskrifast úr húsó í næsta mánuði, man ekki glöggt hvað það var....)
Svo var ég að perla með Þórdísi í morgun, hún var rosalega góð og stillt fyrstu 10 mínúturnar og leyfði mér að taka myndir og allt og pósaði meira að segja en svo breyttist hún allt í einu og þá voru perlurnar komnar út um allt eldhúsgólf !!!!!, Ég varð nú ekkert sérstaklega ánægð og svo kom pabbi og þau fóru að gefa öndunum brauð (sem henni finnst sérstaklega gaman, held stundum að hún eigi eftir að hoppa út í andarpoll og synda með öndunum eða eitthvað álíka) og þegar þau komu til baka var ég búin að tína allar perlurnar og var á leiðinni í vinnunna.
Var á staðnum í afmælisveislunni og var að leika mér að fikta í nýja kassakerfinu (kári sagði mér að fikta í því um helgina!!) og þvílík snillllllllld, nákvæmlega eins og í búð, held samt að ég hafi ekki gert neinar major vitleysur, búin að setja matseðilinn inn í kerfið en á eftir að bæta fleiru við og fikta aðeins meira :haha: :haha:
Svo var ég aðeins að kíkja á facebook og sá að ein vinkona mín úr london er nýbúin að eignast barn, og ég vissi ekki einu sinni að hún væri ólétt, en þá fór ég að hugsa.......
Maður kynnist alveg fullt af fólki á lífsleiðinni (ekki samt skilja það að ég sé orðin svona hrikalega gömul, þótt stundum finnist mér það, er ennþá bara 21!! (ok í anda amk)) og missir af þeim þegar leiðir skiljast, einsog við janine til dæmis, vorum nánast óaðskiljanlegar þegar ég bjó í London og svo kom Janis og við vorum þrjár óaðskiljanlegar þangað til að eitt atvik gerðist (ætla EKKI að fara nánar út í þá sálma) og svo misstum við af hvor annarri. Einnig hellingur af öðru fólki sem mér dettur í hug akkúrat núna, veit að Karen býr á Írlandi með Conor, seinast þegar ég frétti af Trine var hún á leið til sameinuðu arabísku furstadæmanna (nánar tiltekið dubai eða eitthvað svoleis), ætli hún sé ennþá með Mr. Tuffy (paul) og ef ekki hvar er hann þá, ætli hann sé bara heima á Írlandi eða ? Svo eru það Diana og Anke sem eru búnar að vera á Nýja-Sjálandi og eru núna fluttar til Ástralíu (melbourne) og svo er það Cami sem er frá Ástralíu og býr í Melbourne, hún er að vinna með Sheryl en með henni var ég að vinna í Brighton (lítill heimur eða lítill heimur). Hvar ætli Keith sé (man ekki hvað kærastan/konan hans heitir.....vallý manstu það?) ennþá í NZ eða OZ?
Mig langar aftur á móti að flytja þangað til NZ eða OZ, geng ennþá með þá bakteríu í maganum, og mun sennilegast alltaf gera þangað til að ég pakka saman og fer!
En er sæmilega sátt við lífið einsog það er í dag, komin þangað sem ég ætlaði mér (þeas starfið) og með bónus (prinsessan mín) og er bara í fínustu málum. En langar samt að gera eitthvað meira, en það verður að bíða aðeins betri tíma þar sem að það er allt að fara á fullt (eiginlega allt komið á fullt, utan við að terían verður ekki opnuð fyrr en 1.maí!) og þá á ég ekki eftir að hafa mikinn tíma aflögu til að skrifa eitthvað hérna, þannig að ég bið ykkur afsökunar svona fyrirfram (illa góð eða?)
Eitt í lokinn (áður en ég fer að surfa meira á netinu, af því að ég nenni ekki að sofa), búin að breyta msninu mínu þar sem það var alltaf að senda vírus og svoleis, og í staðinn fyrir að ég fari að adda ykkur öllum á nýja þá er einfaldast að þið addið mér ( fljótlegra :) ) jonaarny@hotmail.com og hana nú!!



» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 17:09:55 / jona

2 vikur í opnun

Og það er bara allt að gerast í vinnunni. Olga er komin til mín aftur og mikill léttir fyrir mig, að fá smá meiri hjálp, en ekki að segja að það bætist bara annað ofaná (eitthvað sem ég ætti að vera að gera sem hótelstýra), en svona er nú lífið.
Búið að vera fínasta veður og svoleis, sólin skín og hitinn er alveg sæmilegur (mjög hlýtt t.d. inná skrifstofu, en var að opna gluggann, loftið orðið óþarflega þungt)
Ætlaði að skreppa í sveitina um helgina, en það breyttist á mánudag þegar stóri var bókaður og ég þ.a.l. að vinna, sem er ágætt, get sinnt smá pappírsvinnu á meðan og gert eitthvað svoleis.
Svo í gær bankaði litli bró uppá með Iwonu og bauð ég þeim í mat (ora fiskibollur með bleikri sósu og kartöflum) og þórdís borðaði 4 kartöflur og 4 bollur, þetta finnst henni sko gott. Svo sýndu Bragi og Iwona mér sónarmyndina, hún er komin 9 vikur og er skráð 20.nóvember, og allt gengur bara vel hjá þeim, til lukku með þetta bæði tvö.
Svo er áætlað hótelstjóranámskeið 13-22.maí og býst við að ég verði fyrir sunnan þá, en nb ég er að "vinna" tæknilega séð og kemst kannski ekki í heimsókn til allra (það verður kennt í alla þessa daga, líka um helgina) En svona er lífið og þetta er bara partur af prógramminu.
Er líka búin að breyta msninu mínu, þar sem gamla var alltaf að senda vírusa þá bjó ég bara til nýtt og núna vantar mig marga á msnið en nýja hotmailið er jonaarny@hotmail.com endilega bætið mér inná hjá ykkur.
Hef svosum ekkert meira að segja, er að bíða eftir tveim nýjum starfsmönnum sem verða á víkinni svona c.a. 18:30ish og ákvað að vera bara í vinnunni þangað til í staðin fyrir að fara heim og svoleis ves.
Hef ekki meira að segja, ætla að halda áfram að pappírast í vinnunni, lille lördag í dag :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 20:43:05 / jona

Gleðilega Páska

Jæja þá eru komnir páskar og málshátturinn minn var svohljóðandi: Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni..
Svo í morgun þegar Þórdís vaknaði hélt ég að hún væri nú bara ennþá þreytt þegar hún fékk páskaeggið en þegar hún vildi ekki borða neitt nammi (nema nóa kroppið) þá ákvað ég nú að mæla hana og viti menn hún var komin með 39 stiga hita, svo mældi ég hana aftur um tvö leytið og ennþá var hitinn 39 og þá gaf ég henni meira panodil junior og svo um fimmleytið var hún orðin ferskari og komin með 38 stiga hita, svo kom að stundinni okkar og þegar hún var búin, þá ákvað hún að æla yfir mömmu sína, mikið svakalega var ég nú ánægð. eða þannig
Allaveganna fór ég svo með hana inn í herbergi og svæfði hana og var hún sofnuð hálfátta og vona ég að hún sofi og nái þessu nú úr sér, vona að þetta sé bara svona sólarhringspest, en ekkert meira.
Ég er allaveganna komin með hausverk, búin að taka íbúfen og vona að það virki bara, ætla að leika mér aðeins á netinu í viðbót, athuga hvort það sé eitthvað í sjónvarpinu sem ég nenni að horfa á og fara svo að sofa. Ekki borða yfir ykkur af páskaeggjunum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 00:35:31 / jona

Alveg að koma páskar

Jæja þá eru alveg að koma páskar, og ég er búin að þrífa og skrúbba í dag, hengja upp myndir en hafði svo ekki meiri orku í að klára gluggatjöldin, ætla að gera það á morgun.

Annars fór ég til Reykjavíkur á seinasta fimmtudag, og mikið var þetta nú stressandi, ætlaði að hitta fleira fólk en ég gerði, en þar sem það tekur geigvænlegann tíma að keyra í bænum og maður skreppur ekki mikið nema maður meini amk klukkutíma, þess vegna var mér mjög létt þegar ég komst aftur norður, svo miklu meira afslappað hérna, mér bara finnst það!

Svo fórum við systur og gyða og dagný á Nasa á laugardagskvöldið (redduðum okkur á gestalistann hjá palla (páli óskari)) og mikið andsk. var geðveikislega gaman!! Persónulega man ég ekki hvenær ég dansaði svona mikið og skemmti mér yfirhöfuð svona óeðlilega vel, enda vorum við ekki farnar út af nasa fyrr en um fimmleytið og keyptum okkur pizzu (ÉG VIL SKO EKKERT HELVÍTIS GRAS Á MÍNA PIZZU!! svar kollu til lindu sem vildi fá ruccola salat á pizzuna!)
Og svo var labbað hægt og rólega í leigubílaröðina (fæturnir ALGJERLEGA BÚNIR!) og svo uppá hótelherbergi, pizzan borðuð og svo sofnuðum við allar, fórum svo niður í morgunmat, lindu svo skutlað í vinnuna og pabbi og þórdís sótt og svo var haldið í ikea (var búin að reyna að fara á bæði fös og lau!) og bíllinn hans pabba fylltur (bókstaflega) af dóti fyrir íbúðina mína og svo heim til kollu, borðaður kvöldmatur og ég sofnaði í sófanum hjá kollu, steinsofnaði, enda orðin uppgefin á líkama. Svo fór ég að vinna aðeins á mánudaginn uppi á aðalskrifstofu, svo bara chillað heima hjá huldu, en lovísa var búin að jafna sig að mestu, svo bara heim til ottós og slappað aðeins meira af, svo keyrt heim á þriðjudaginn og vinna í gær og þrífa í dag, þannig að daginn á morgun ætla ég að nota mest til að slappa af og svo ætla ég að elda kjúlla, bara inni í ofni, einfalt og þægilegt.
Svo er það vinna aðeins á laugardaginn og sunnudaginn, svo frí  á mánudag, vinna svo bara eins og venjulega og já, joy of joys :haha::p

En er eiginlega orðin drulluþreytt, er að hlusta á palla og dýrka diskinn sérstaklega lag númer 4 og svo 5 og svo 2 og 3 og..............já bara eiginlega allann diskinn, en jæja góða nótt og gleðilega páska


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 14:13:14 / jona

Bjartsýnir íslendingar

Góðann og blessaðann. Verð hérna (í vinnunni) í alla nótt og fram á morgun en hvað um það, svona er lífið eða eitthvað.
Var á bloggrúnti og ákvað að herma eftir Elísu og setja þetta bjartsýnisdót inná síðuna mína, finnst þetta með eindæmum alveg nokkuð nærri lagi (er hérna fyrir neðan rausið um bensíníð!)
Hvað finnst ykkur annars um þetta bensínverð!! HAAAALLLLÓÓÓ!! var að spá í að koma suður um næstu helgi en er alvarlega að hugsa um að hætta við, er bara ekki að tíma því, þótt að maggi minn eyði nú ekki miklu bensíni þá er þetta að vera komið út í Hróa. Man í gamla daga þegar maður fór á laugardögum og keypti sér bland í poka fyrir 150kr og var nú svakalega ánægður með það en að í dag skuli líterinn af bensíni 95 okt vera kominn upp í 140kr, þetta er náttúrulega bara grín!! hvenær ætla íslendingar að mótmæla af viti (þegar frýs í helvíti og þegar við vinnum eurovision kannski??) Tökum til dæmis frakkana, þeir myndu ALDREI láta þetta yfir sig ganga, mér finnst að við mættum nú mótmæla svona eins og einu sinni, en endilega látið í ykkur heyra hvað ykkur finnst um þetta.
Skemmtið ykkur svo vel um helgina, hvað svo sum þið gerið.

+15°C
Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
Íslendingar liggja í sólbaði.

+10°C
Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
Íslendingar planta blómum í garðana sína.

+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.

0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.

-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.

-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli.

-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!

-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.

-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.

-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru
vetrarveðri.

-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar kaupa sér 48DVD og halda sig inni við.

-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti.
Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.

-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.

-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.

-300°C
Helvíti frýs!
Ísland vinnur Eurovision!



» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 17:37:02 / jona

Eurovision

Var að hlusa á Fullkomið líf í ensku útgáfunni á esctoday.com og mér finnst það miklu flottara en ho ho ho, we say hey hey hey.

Hef nú ekki gefið atkvæði í þeim keppnum sem hafa verið en er mikið að spekúlera að gefa fullkomið líf (this is my life) mitt atkvæði í kvöld.

Verð ekki í neinu partýi í kvöld þar sem ég ákvað í gær að fara bara í sveitina og ætla að vera hér þangað til á morgun, þá er kominn sunnudagur og verð víst að fara heim þar sem það er vinna á mánudaginn og þórdís þarf að fara á leikskólann.

Hef svosum ekkert meira að segja þannig lagað séð, búin að bóka sumarfríið mitt 16-30 september og þá fer ég með þórdísi og guðný til TENERIFE!!! omg hvað mig hlakkar til, hef amk eitthvað til að hlakka til ef að sumarið verður of strembið, en þetta er allt að koma með sumarið, lítur bara vel út þannig að so far so good. Læt þessu lokið í bili, ætla að fara aftur niður og slaka meira á og hlaða batteríin :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 22:25:30 / jona

Hver vill

kem með færslu á morgun eða um helgina með heimsókn fyrrverandi tengdó til landsins og það er sko skemmtileg saga, en desperate housewifes eru að fara að byrja og verð bara að segja eitt

HVER VILL KOMA MEÐ MÉR OG ÞÓRDÍSI TIL KANARÍ Í SEPTEMBER??

Endilega kommentið á það, búin að vera að skoða og er að deyja.....mig langar svo mig langar svo að lyfta mér á kreik :) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 21:38:23 / jona

Þá er Þorrinn byrjaður

og mín svakalega dugleg og góð við gamla kallin, færði honun blóm og "eldaði" kjúkling (keyptur eldaður og alles í úrval) líka af því að hann passaði allann daginn fyrir mig því hún var með pínu hita og svoleis.

Svo í gær fórum við inná eyri og þar keypti ég sjónvarpsskáp og hann komst næstum því ekki fyrir í honum magga mínum, úff hvað ég var samt ánægð að kassinn skyldi passa, var nefninlega búin að kaupa massa magn af bleyjum í bónus en skemmtum okkur bara ágætlega inná eyri, þórdís hafði miklar áhyggjur kvöldið áður en hún fór að sofa af því hvort að kisan hans braga væri ennþá týnd. (svoldið síðan hún kom heim aftur)

Er svo að koma suður á þriðjudaginn, verð komin um kvöldið til kollu og svo á miðvikudaginn fer ég í heimsóknir (er byrjuð að gera tímaplan, þetta verður mjög busy dagur) svo á fimmtudaginn förum við út á flugvöll að ná í Lönu og John, ömmu hennar og afa (fyrrverandi tengdó;) og svo er matur og gisting hjá kollu og davíð, keyrt norður á föstudaginn og þorrablót í skúlagarði á laugardagskvöldið og svo aftur suður á sunnudag/mánudag og þau fljúgja kl 17:00 á mánudag aftur til london.

En þetta á bara eftir að vera gaman, þarf einmitt að fara að athuga með myndavélina mína, gá hvað það er mikið eftir af minniskortinu, klára hluti í vinnunni áður en ég fer "í frí", þvo föt svo við höfum nú eitthvað hreint með okkur, þrífa íbúðina svo hún líti skár út þegar ég kem heim á föstudaginn ofl skemmtilegt.

Ætla að fara að hengja upp úr vélinni, hún er búin og er svo að spá í að taka bloggrúnt eða eitthvað og fara svo að sofa. over and out

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 3 október
Heimsóknir
Í dag:  40  Alls: 121482
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 550 dögum
Ég fer til Tenerife :)
Leitarbox

RSS tengill